Míkróskurður
Sólning býður upp á míkróskurð fyrir öll dekk: fólksbíladekk, jeppadekk, trukkadekk og lyftaradekk.
Verð 4.900 kr.
Við míkróskurð þá eru skornar fínar línur þvert yfir dekkið til að auka grip og aksturseiginleika í hálku og bleytu. Míkróskurður eykur jafnframt endingu á dekkjum þar sem kæling þeirra eykst þegar dekkin eru skorin.
Rannsóknir hafa sýnt að míkróskurður getur dregið úr bremsuvegalengd um 22%.
Míkróskurður var fundinn upp árið 1923 af starfsmanni sláturhúss sem var orðinn þreyttur á að detta á hausinn í bleytunni í sláturhúsinu. Hann prófaði að míkróskera sólana á vinnuskóm sínum til að vera ekki alltaf á hausnum. Í dag eru flest vetrardekk míkróskorin.
Við mælum með
Við mælum með að jeppamenn sem fara á fjöll prófi að láta míkróskera dekkin hjá sér til að ráða betur við þær aðstæður sem geta mætt þeim á fjöllum.
Við mælum líka með að lyftarakallar sem eru orðnir þreyttir á að spóla á lyfturunum prófi að míkróskera.