Dekkjaþjónusta

Sólning býður upp á fyrsta flokks dekkjaþjónustu með fullkomnum tækjabúnaði. 

Verðskrá

Dekk

Sólning býður uppá mikið úrval af frábærum dekkjum á mjög hagstæðum verðum sem standast gæðakröfur okkar íslendinga, þar má helst nefna heimsþekkta framleiðendur eins og Hankook, Goodyear, Nexen og Sava.

Einnig bjóðum við uppá ódyrari valkosti sem henta vel, oft er hægt að gera mjög góð kaup í ódýrari dekkjum, þar koma framleiðendur eins og Roadstone, Viatti og Landsail sem hafa verið í gríðarlegum framförum síðustu ár.

Endilega kíkið á verðskrá dekkja og fléttið upp ykkar stærðum, þar má finna verð og myndir af okkar dekkjum, ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita af endilega hafðu samband við sölumenn í síma 544-5000.

Dekkjahótel

Hjá Sólningu getur þú geymt dekkin þín fyrir sanngjarnt verð og sparað þannig geymslupláss, þú sparar þér einnig þá fyrirhöfn að þurfa að meðhöndla dekkin sem bera óhreinindi.

Við bjóðum upp á afgreiðslu samdægurs þar sem dekkin eru öll geymd á verkstæðum okkar, þar af leiðandi mætir þú þegar þér dettur í hug að sækja dekkin og fá þau undir bílinn hjá þér.

Þegar þú afhendir dekkin færðu miða merktan með þínu númeri sem dekkin eru svo merkt með. Í kringum þessa þjónustu höfum við hannað fullkomið skráningarkerfi sem heldur utan um dekkin þín á milli dekkjaskipta.

Verð

Alskipting 13-16” 13.500 kr.

Alskipting 17-18” 14.900 kr.

Alskipting 19” 19.500 kr.

Alskipting 30-32” 19.500 kr.

Alskipting 33-35” 21.500 kr.

Alskipting Jepplingur 16.900 kr.

Alskipting Jepplingur 18” 17.900 kr. 

Alskipting Sendibílar millistórir 17.900 kr.

Alskipting Master 18-22” 23.900 kr.

Sendu okkur línu